Íslenzki Aðallinn - Vor 2005
Aðrar myndir
10.06.2007 16:55:29 / Adallinn

mögulegt partý

Jæja Krakkar mínir... læt ykkur hér með vita að það er mögulegt partý annaðhvort föstudaginn 22.júní 2007 eða 23.júní 2007, ekki ennþá víst en það kemur vonandi í ljós næsta miðvikudag eða fimmtudag... ef það verður partý þá koma upplýsingar um staðsetningu og stuðskalann á sama tíma og staðfesting fæst:^):P:haha::whut::$:!::(:D8):S:|:lol:

með bestu kveðju: Ari Lár 


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:11:49 / Adallinn

Hildur, takk fyrir mig!

Fyrir hönd Aðalsins vill ég þakka Hildi kærlega fyrir mig og okkur. Það er óhætt að mikil gleði hafi átt sér í stað í blokkaríbúð á Háaleitisbrautinni um síðustu helgi. Sumir komu á óvart og mættu á Limmó á meðan aðrir komu minna á óvart og mættu á gömlum Nissan Sunny.


Lögreglan kíkti í smá heimsókn við mikinn fögnuð viðstaddra og er ég á þeirri skoðun að upprunalega hafi ekki verið kvartað undan okkur heldur Versló-börnunum í íbúðinni hinum megin sem við kíktum aðeins yfir í.


Auðvitað var miðbærinn málaður í öllum regnboganslitum, með mismikilli ölvun, enda var það planið. Tugum lítra var svolgrað á hinum ýmsu skemmtistöðum borgarinnar og allir í dansandi stuði.


Enn og aftur, takk fyrir mig!


Kv.

Bjarni


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:41:58 / Adallinn

Næsta Aðalspartý!

Góðir Aðalsmenn og konur. Það er mér sönn ánægja og mikill heiður að fá að tilkynna ykkur um næsta Aðalspartý! Takið vel eftir… (ef þið gerið það ekki getið þið lesið þetta yfir aftur)


Ég get nokkurn veginn lofað fólki stanslausu stuði, frábærri skemmtun og stemmningu næstu helgi, nánar tiltekið laugardagskvöldið n.k. Hildur partýbolti með meiru ætlar að bjóða okkur öllum heim til sín í smá hitting og gleðskap þar sem bjór og öðru alkahóli (óháð prósentutölu) verðu slátrað í tuga ef ekki hundruð lítra tali. Einn maður er búinn að lofa því að verða fullasti maðurinn á svæðinu en það er hann Bjarki. Hann nefndi það á Aðalssíðunni þann 12.07.06, eða eftir síðasta Aðalspartý sem þá var haldið heima hjá Meistara Sigrúnu. Á þeim degi skrifaði Bjarki: „takk fyrir mig og ég lofa að í næsta partý skal ég vera fullastur“. Fimm dögum síðar svaraði ég honum: „Ég hlakka til að sjá það! :D“. Ég hlakka ennþá til og hef beðið eftir næsta Aðalspartý síðan þá…


En hvað um það. Núna skuluð þið bretta upp ermar, opna augun, kveikja á heilanum því hér að neðan koma mikilvægar upplýsingar sem þið þurfið að vita varðandi næstu helgi:


Hvert á ég að mæta? Háaleitisbraut 43

Hvenær verður partýið? Laugardagskvöld n.k. (27.01.07)

Hvenær viltu að ég mæti? Um klukkan 21:00

Í hvernig skapi viltu að ég verði í? Frábæru skapi, líkt og sumarið væri komið, hrossaflugurnar að skríða á rúðunni hjá þér og þú sitjandi utan Ungó að slátra ís í brauðformi á meðan máfarnir borða síðustu frönsku kartöflurnar af götunni…


Nú er um að gera að taka rúnt í Ríkið, fylla skotið, hanskahólfið og önnur möguleg hóf ásamt sætunum af áfengi því enginn vill verða fyrir því óláni að vera bjórlaus og byrja að drekka vatn.


Þegar við Aðalsmenn erum að komast í okkar besta gír verður leiðin haldin niður í bæ þar sem við ætlum að mála bæinn í öllum mögumlegum litum.


Hverjir ætla að láta sjá sig n.k. laugardagskvöld?


Með dúndrandi drykkjukveðju,
Bjarni


» 22 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 19:21:17 / Adallinn

Partý...


Við bíðum spennt...

Kv.
Bjarni - sem hefur aldeilis gírað djammið niður undanfarið...


» 18 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 21:16:15 / Adallinn

Gamlar færslur

Þar sem Ebbi kíkir örsjaldan hingað inn, þá þótti mér við hæfi að setja inn „fídus“ hingað á síðuna þar sem hægt er að flétta upp í gömlum færslum. Núna getur Ebbi tekið sér tíma við að lesa það sem hann hefur misst úr.

Þið hin getið eflaust rifjað upp einhverjar minningar...

Kv.
Bjarni

» 9 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 18:07:11 / Adallinn

Sigrún, takk fyrir mig! Jóna og Berglind, hvenær verður næsta partý?

Vildi bara enn og aftur þakka kærlega fyrir mig. Persónulega skemmti ég mér konunglega eins og alltaf þegar þessi æðislegi hópur hittist!

Vonandi verður annað partý fljótlega en til gamans má geta þá nefndi Jóna aðeins við mig að hún ætlaði að halda það næsta ;) Svo talaði Berglind um það sama hér á blogginu fyrir nokkru síðan þannig að það er eintóm gleði framundan, újé!

Kv.
Bjarni (vinur Partý-Hans, eða Partý-Hjénz eins og við vinirnir köllum hann)

» 26 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 20:50:04 / Adallinn

07-07

 

 

 

07.07.2006

 

Jæja þá er komið að partíi ársins!!!

Föstudagskvöldið 7. júlí 2006 verður stærsta, besta og flottasta partí aðalsins þetta árið!

Partístaður:   Lyngholt 19, Keflavík ath. breyttur staður.

Partítími: Hefst klukkan 21:00.

Þeir sem ætla að vera í kokteilnefndinni vinsamlegast gefið ykkur fram með reikningsnr og kennitölu til að leggja inn á.

Stuð og partí kveðjur

Sigrún Ofurstrumpur!


» 38 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 15:22:58 / Adallinn

Sól, sól skín á mig, ský ský burt með þig...




Sumarið er tíminn


» 42 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 19:06:31 / Adallinn

Heyrst hefur að...

  • Ari Lár sé farinn að deita Homma (eða var það Nammi?)
  • Gústi hafi komist upp á eina frá Egilstöðum á föstudagskvöldið s.l.
  • Berta sé farin að dressa upp þekkta einstaklinga á Ítalíu
  • Berglind hafi fengið módel-samning við belgískan eyrnapinnaframleiðanda
  • Bjarki sé með tippið á lofti öll kvöld vikunar. Kallinn veður víst í Norðurlandabúum þessa stundina og þar eru Grænlendingar engin undantekning
  • Bjarni sé að leggja bjórinn aftur á hilluna í ískápnum (getur það verið?)
  • Elín sé að baka eintóm vandræði í Reykjavíkinni
  • Ebbi sé ennþá að klára veigarnar sem eftir voru í s.l. Aðalspartýi. Kallinn verður ekki þurr fyrr en seint á þessu ári :/
  • Grétar hafi komist upp á þá sömu og Gústi tók á s.l. föstudagskvöld en Grétar tók á henni á laugardagskvöldinu
  • Gugga vaði í barþjónatilboðum. Eitt þeirra er frá Celtic og vonum við Aðalsrónar að hún muni taka því
  • Gunni spóli í stelpum öll kvöld enda kann kallinn á mótorhjólið...
  • Dóri ætlar sér að fara á fimm nýjar strippbúllur í Mexíkó í maí
  • Helena sé týnd!
  • Hildur sé farin að sakna Aðalspartý svo mikið að hún hefur leigt Broadway og ætlar nú aldeilis að sýna okkur hvernig á að halda partý
  • Ingi ætli sér á sjúkraliðabrautina á næstu önn
  • Jóna Marín sé farin yfirum á öllum lærdómnum og hefur rakað sig sköllótta
  • Marinó sé ennþá þunnur eftir síðasta Aðalspartý
  • Runni sé orðinn meðeigandi að Paddy's, þrátt fyrir að láta sjá sig aðeins 3svar á ári
  • Rúnar sé orðinn pabbi
  • Sidi sé útúr-tan-aður íslendingur
  • Sigrún sé að plana svakalegt partý ásamt Hildi en Sigrún vill frekar halda það á Paddy's
  • Yrsa taki sér að skutla útúrdrukknum Aðalsmönnum á milli Reykjavík og Keflavík, alveg eftir pöntunum
  • Þórdís sé týnd líkt og Helena

» 17 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 18:49:20 / Adallinn

Aðalspartýið yfirstaðið

Ég vill þakka Ebba fyrir stórfínt partý í gær. Það var mikið fjör hjá okkur eins og venjan er og mætingin betri en búist var við og sást það glögglega á skort á stólum sem hrjáði okkur um tíma ;)

Flestir ef ekki allir fóru rúllandi niður í bæ og skemmtu sér á hinum ýmsu skemmtistöðum í borg óttans. Nú er bara að bíða eftir að Ingi og aðrir hendi inn myndum fljótlega á netið svo hægt sé að rifja upp kvöldið :P

Svo er bara að biðja til Guðs um annað partý fljótlega :)

Viðbót: Fann einhverjar myndir á hverfisbarinn.is


Kveðja,
Bjarni


» 32 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 14:18:12 / Adallinn

Aðalspartý um helgina, yaaaahooooo! :D

Ég held að það sé alveg óhætt að segja að ríki mikil gleði og gaman hjá Aðlinum núna. Ástæðan? Jú, Aðalspartý næstu helgi og það í Reykjavík í þokkabót.

Ebbi ætlar að bjóða okkur öllum í heimsókn í höllina sína að Efstasundi 16 (rétt hjá IKEA í Holtagörðum), laugardaginn 11. febrúar n.k og er mæting um 20:30. Ebbi ætlar að sýna gestrisni sýna með því að bjóða upp á hvítvín, rauðvín, Ritz kex og osta en fólki er ráðlagt að kippa með sér nokkrum bjórum. Ástæðan fyrir að fólk eigi að taka með sér bjóra, svaraði Ebbi: „Þó svo ég bjóði bæði upp á hvítvín og rauðvín, þá er ekki þar með sagt að það renni einhver helv. hvítvínsfljót og rauðvínslækur í gegnum íbúðina hjá mér! Þess vegna þarf fólk að taka með sér eitthvað áfengi“. Svo líka eins og allir Aðalsmenn vita, þá er ekki gott að verða þyrstur í miðju glensi og eiga ekkert til að svala þorstanum ;) Hópurinn er auk þess þekktur fyrir að vera alltaf með glas/bauk í hendi.

Þetta partý er útpælt og eru Bjarki og Ebbi að leggja lokahönd á undirbúning þess í dag! Það þýðir að þetta verður eitthvað svakalegt partý ;)

Meðal þess sem þeir hafa undirbúið er drykkjuleikur. Hér að neðan er texti sem kemur frá Bjarka varðandi leikinn:

Ok við viljum ekki alveg ljóstra upp akkúrat hvað leikurinn gegnur útá. Það sem fólk fær að vita er að þetta verður skipulagður drykkjuleikur. Leikurinn krefst engra hæfni eða sérstaka kunnáttu á neinu sviði. Ef að fólk treystir sér ekki til að klára leikinn eftir að hafa hafið leikinn, má hætta þegar það vill en auðvitað er mælt með að fólk klári leikinn. Þeir sem klára leikinn fá að sjálfsögðu verðlaun. Leikurinn hefst á milli 22:00 og 22:30 og er áætlaður leiktími rúmur klukkutími. Stuttu eftir að leik lýkur verður trallað niður í bæ og allir ligeglad

Sem sagt, um klukkan 00:00 fer svo hópurinn (helst) allur niður á Celtic Cross þar sem við munum djamma fram í rauðan dauðan.

Hvernig líst ykkur á þetta kæru Aðalsmenn- og konur?

Takið eftir, þið þurfið að staðfesta komu ykkar til þess að undirbúningurinn verði sem bestur, bæði hvað varðar leikinn, matarinnkaup og fleira. Hægt er að láta vita með því að hringja/senda sms í neðangreind númer eða láta vita hér á síðunni í „comments“.

Ebbi: 662-0967
Bjarki: 869-5710
Bjarni: 696-1185

Eitt í viðbót, eru einhver komnir með nýtt símanúmer síðan númeralistinn með öllum númerum Aðalsmanna var gefinn út? Ég þyrfti að vita það ef einhverjar breytingar hafa orðið því annars munuð þið ekki fá hóp-smsin þegar ég sendi þau.

Með partýkveðju og tilhlökkun í næsta laugardagskvöld,
Bjarni


» 42 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 16:54:16 / Adallinn

Fullt af nýjum myndum, nýr bloggari í hópnum og partý-tal...

Það er óhætt að það sé allt í gangi núna. Yrsa hefur bæst í hóp bloggandi Aðalsmanna og einnig eru komnar myndir frá henni hér til hliðar, bæði frá Mexíkó og úr Keiluferðinni.

Eftir smá heimsókn heim til Bjarka nú fyrir stuttu, þar sem 3 Aðalsmenn voru meðal gesta (ég, Ingi og Ari Lár), fengum við að skoða myndirnar sem Bjarki tók út í Mexíkó. Núna hefur hann sett þær á netið og fáum við að njóta góðs af því.

Staðfest er að Dóri og Ari Lár séu að fara aftur út til Mexíkó og heyrst hefur að Gugga ætli að skella sér líka, eitthvað til í þessu?

Svo eru allir farnir að tala um partý, eigum við ekki að halda áfram að ræða um það? Þó svo það gerist ekkert alltof mikið í þeim málum, eins og hópurinn er nú æðislegur ;)

Kv.
Bjarni

» 18 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 17:15:27 / Adallinn

Einn meðlimur Aðalsins orðinn frægur!

Það hlaut að koma að því að einhver úr Aðlinum okkar kæmi sér á kortið (allavega á Íslandi). Skoðið fréttablaðið í dag og þá sjáið þið hver það er ;)

Hægt er að skoða Fréttablaðið í dag, hér

Kveðja,
Bjarni

» 10 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 22:04:14 / Adallinn

Gleðilegt nýtt ár



Gleðilegt nýtt ár! Megi nýja árið innihalda fleiri Aðalspartý heldur en það sem var að líða...

Með kv.
Bjarni

» 17 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 16:36:17 / Adallinn

Svaðalega partýinu er frestað um óákveðin tíma!

Ég veit til þess að nokkrir úr hópnum hafi misst saur þegar þau lásu um þetta djúsí partý sem var í bígerð. Berglind fékk víst svaka magakveisu að sérfræðingar í eyrna- og magaverkjum um allan heim höfðu ekki hugmynd um hvað væri að. Eftir miklar rannsóknir rákust þeir á þessa síðu og lásu um partýið. Þeir vissu strax í kjölfærið hver besta lækningin væri fyrir þessu veseni. Þeir sturtuðu 2 hveitipokum upp í hana og varð líða hennar stöðug eftir það.

Næst þegar ég hitti Berglindi (fleiri) þá á hún eftir að missa saur aftur. En í þetta skiptið yfir bringuna á mér. Málið er að þetta svaðalega partý sem var verið að plana verður því miður að frestast um óákveðin tíma. Ástæðuna er ekki hægt að gefa upp enda um algjört hernaðarleyndarmál að ræða ;)

Við skulum samt ekki láta þetta slá okkur útaf laginu og reyna að halda hefbundið Aðalspartý þennan sama dag, sem sagt 17. des. En nú er bara spurning, hver er ein/einn heima þegar það er orðið svona stutt í jólin?

Kveðja,
Bjarni með kúkinn á bringunni :/

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3